Fréttir

Tími til að lesa!

Menntamálastofnun hefur í samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið sett af stað lestrarverkefni sem ber heitið Tími til að lesa! Allir Íslendingar eru hvattir til að skrá allan sinn lestur næstu fjórar vikurnar á heimasíðu verkefnisins.
Lesa meira

Gleðilega páska!!

Við öll nemendurnir í GaV sem og starfsfólk óskum ykkur gleðilegra páska. Við vonum að þið hafið það gott í fríinu og njótið þess að eyða tíma með ykkar nánustu. Páskafrí hefst að loknum skóladegi föstudaginn 3. apríl. Fyrsti skóladagur eftir páska er fimmtudag 16. apríl. Skóli hefst þá strax um morguninn á venjulegum tíma.
Lesa meira

Breytingar á skóladagatali

Í ljósi breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu með samkomubanni og skertu skólahaldi hefur skóladagatali Grunnskólans austan Vatna verið lítillega breytt dagana eftir páskafrí.
Lesa meira

Saman stöndum við

Eins og allir vita hafa átt sér stað miklar breytingar í okkar samfélagi og það er akkúrat á svona stundum þar sem sameiningar máttur minni staða kemur í ljós. Starfsfólkinu og nemendunum var skipt upp í smærri hópa og þó það sé nokkuð ljóst að það sé söknuður innan hópsins að fá ekki að hitta alla, að þá eru hóparnir samt að plumma sig vel og gleðistundirnar margar.
Lesa meira

Hertar aðgerðir í samkomubanni

Í ljósi þess að kynntar hafa verið hertar aðgerðir í samkomubanni skerpum við aðeins á okkar skipulagi síðan í síðustu viku þó skýrt hafi verið tekið fram að ekki væru breytingar á fyrri auglýsingu um skert skólahald.
Lesa meira

Skipulag skólastarfsins

Hér er yfirlit yfir skipulag á skólastarfi Grunnskólans austan Vatna, vegna takmarkana á skólastarfi sem heilbrigðisráðherra setti og gildir frá 16. mars kl. 00:01 til 12. apríl 23.59:
Lesa meira

Upplýsingar vegna samkomubanns

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður með breyttu sniði.
Lesa meira

Skólahald fellur niður á Hofsósi

Miðvikudaginn 11.mars fellur skólahald niður á Hofsósi vegna hvassviðris, ofankomu og lélegra aksturskilyrða. Gildir þetta fyrir grunnskólann sem og tónlistarskólann. En skólahald fer fram á Hólum samkvæmt stundaskrá.
Lesa meira

Viðbragðsáætlun GaV

Viðbragðsáætlun Grunnskólans austan Vatna hefur nú verið uppfærð miðað við heimsfaraldur COVID-19 veirunnar.
Lesa meira

Geggjaður árangur í skólahreysti!!

Í gær miðvikudaginn 4.mars tók GaV þátt í skólahreysti vorum við þar í riðli með skólum utan Akureyri á Norðurlandi vestra. Þeir sem kepptu fyrir hönd skólans voru Arnór Freyr Fjólmundsson, Konráð Jónsson, Agla Rut Egilsdóttir og Njála Rún Egilsdóttir, Katla Steinunn Ingvarsdóttir var varamaður en því miður var Vignir Nói Sveinsson veikur.
Lesa meira