Árshátíð miðstigs Grunnskólans austan Vatna

Fimmtudaginn 7. nóvember ætlar miðstig Grunnskólans austan Vatna að sýna leikritið Jón Oddur og Jón Bjarni í Félagsheimilinu Höfðaborg kl. 18:00. 

Tvíburarnir frægu eru hugarfóstur Guðrúnar Helgadóttur en leikritið var fyrst sett upp í Þjóðleikhúsinu 2002 í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar.

Nemendafélag GaV verður með veitingasölu að sýningu lokinni.

Allir velkomnir - hlökkum til að sjá ykkur.